1. |
Ég vildi að ég
03:31
|
|||
Ég vildi að ég
gæti verið með
verið með þér þar til bjartur dagur aftur rís
Ég vildi að ég
gæti fagnað með
fagnað með þér mörgum, mörgum árum farsældar
Og að alltaf værir þú mér nærri
Og að við eigum saman líf í kærleika
Ég vildi að ég
gæti átt þér með
átt með þér frjósamt líf og mikinn barna auð
Ég vildi að ég
gæti lifað með
lifað með þér þar til sólin sestjast mun á ný
Og að alltaf værir þú mér nærri
Og að við eigum saman líf í kærleika
Tórað gæti ég
ef værir þú ei hér
en varðveitt þig svo létt í huga mér.
Ég vildi að ég
gæti verið með
verið með þér þar til bjartur dagur aftur rís
Ég vildi að ég
gæti lifað með
lifað með þér þar til sólin sestjast mun á ný
Og að alltaf værir þú mér nærri
Og að við eigum saman líf í kærleika
|
||||
2. |
Snemma að vori
03:41
|
|||
Það var á frekar dimmum stað
Ég einn á ferð þegar að
augun þín sá
Svo yndisleg og blá
Seinna var svo brotið blað.
Er augun sá á öðrum stað.
Um varir færðist bros
Þetta yndislega bros
Og ætíð síðan þá
Þig hef ég haft mér hjá
þín fögru augun blá
og bros þitt fæ að sjá
Snemma að vori þetta var.
Allt í blóma allstaðar.
þá stund ég geymi hér.
svo blítt í hjarta mér.
Og ætíð síðan þá
Þig hef ég haft mér hjá
þín fögru augun blá
og bros þitt fæ að sjá
Snemma að vori þetta var.
Allt í blóma allstaðar.
þá stund ég geymi hér.
svo blítt í hjarta mér.
|
||||
3. |
Rödd kærleikans
03:23
|
|||
Ég verð hér
Ég verð hér á meðan sólin skín
Sé til þess að aldrei ástin dvín
já ég verð hér með þér
Ég verð hér
Ég mun reyna að snerta hjarta þitt
Helgað hef þér allt lífið mitt
Hvað sem það svo með sér ber
Já ég mun fylgja þér
Allt á betri veginn fer
Þótt allt vonlaust virðist hér
Þú mátt treysta mér
Nótt sem nýtan dag
Allt mun færa í betra lag
Þú mátt treysta mér
ég mun fylgja þér
Ég verð hér
Ég verð hér til enda daganna
Líf mitt snertir ástir mannanna
já ég verð hér með þér
|
||||
4. |
||||
Ást og kærleikur
er það
sem að allir leita að
Eymd og volæði
enginn vill
en hvað er það sem veldur
Leit á röngum stað
eftir því
sem engan frið þér veitir
Ganga um dimman dal
veldur oft
að ekkert ljós þú eigir
Reynd'að finna réttan veg
Ekki er leiðin þægileg
En sjá hvað liggur handan
Hvað með allan þennan kærleik
alla þessa ást
allt það sem við getum ei lifað án
Burt með illskuna og hatrið
allt það neikvæða
allt það sem sem við getum vel verið án
|
||||
5. |
Friðinn þar ég finn
03:46
|
|||
Í hugarfylgsnum á ég stað
sem hverf ég tíðum til
Er lífsins ok mig ætlar að
kremja hérum bil
Og þar finn ég allt það sem að ég hef leitað að
Friðinn, friðinn þar ég finn
Oft á tíðum mín liggur leið
á þennan sama stað
Og engann þarf ég seið
til að komast að
Því þar finn ég alltaf það sem maður leitar að
Friðinn, friðinn þar ég finn
|
||||
6. |
||||
Ekkert heldur aftur af þér
þú getur gert hvað sem er
gert hvað sem er
halt'u ekki aftur af þér
Svifið eins og fugl yfir höf
farið út yfir dauða og gröf
dauða og gröf
Svífð'u yfir höf
Breytt þú getur vatni í vín
gengið á Rín
og sólin skín
þú gengur á Rín
Mettað getur fimmþúsund manns
með eligans
og þyrnikrans
þú berð með eligans
Ekkert heldur aftur af þér
þú getur gert hvað sem er
gert hvað sem er
sjáðu hvernig það fer
Lægt þú getur óveðurs ský
Látið lamaða ganga á ný
ganga á ný
stillir vindanna gný
Breytt þú getur nóttinni í dag
öllu komið í lag
já hvers manns hag
þú getur komið í lag
Læknað getur holdsveiki manns
með eligans
og krossinn hans
þú berð með eligans
|
||||
7. |
Jonni
03:07
|
|||
Æ! þú sem varst mér svo kær
En stöðugt þú færðist þó fjær
Jonni! þú varst alltaf helvíti klár
Jonni! en nú ertu fölur sem nár
Jonni! nú felli ég tár
Æ! þeir kveiktu í þér bál
og svo brann upp þín sál
Jonni! þú varst alltaf helvíti klár
Jonni! en nú ertu fölur sem nár
Jonni! nú felli ég tár
Þú varst alltaf klár. Nú felli ég tár
Hvað gat ég gert til að forða þér vímunni frá
Ég stóð allt of lengi í fjarlægð og horfði á
Guð blessi þig nú
Það er mín von og trú
Jonni! þú varst alltaf helvíti klár
Jonni! en nú ertu fölur sem nár
Jonni! nú felli ég tár
Þú varst alltaf klár. Nú felli ég tár
Þú varst alltaf klár. Nú felli ég tár
Nú felli ég tár
|
||||
8. |
Vill einhver hjálpa
03:47
|
|||
Ég hef reynt að rölta upp stigann
En raunin erfið er
Með auga í pung ég mið’ann
En allt þá snúast fer.
Vill einhver hjálpa, hjálpa, hjálpa mér?
Gekk ég götu þína greiða
ei gangan gömul var
innra leyndist lítil bleyða
inni lenti á litlum bar
Vill einhver hjálpa, hjálpa, hjálpa mér?
Það engan veginn sanngjarnt er
Að ég sitji hérna núna
Marga hildi háð hef hér
En hvíli nú fætur lúna
Vill einhver hjálpa, hjálpa, hjálpa mér?
Ef einhver kóni kemur
Og sér mig kúldrast hér
Þá frekar öðru fremur
vild'ég hvíla í faðmi þér
Vill einhver hjálpa, hjálpa, hjálpa mér?
|
||||
9. |
Hverju trúir þú
03:42
|
|||
Sögur ganga um byggð og ból
að álfar búi í hverjum hól
í holt'i og hæðum huldufólk
við fengum með okkar móður mjólk
og nú.. hverju trúir þú
Tröll og forynjur fjöllum í
fjöldi dverga og annað þý
þrettán voru þeir, ekki einn,
Grílu synir enginn Colasveinn
og nú.. hverju trúir þú
Allar sögurnar, allar sögurnar og trú
Hefur þú einhverjar fregnir um
hví Guð búi uppí himnunum
og allur herskari himingeims
byggði áður lendur þessa heims
ó jú.. þar munt einnig skína þú
Horft til stjarnanna
hvaðan skyldi nú allt koma
horft til stjarnanna
nú er bara að bíða og vona
|
||||
10. |
||||
Í huganum ég til bak'a í tímann fer
þá er lífið var milli þess sem er og ekki er
Margt þar bar á dag og engum segja má
því þetta var heimur minn sem enginn annar sá
Í lífsins ólgusjó horfið eg gat í minn ævintýraheim
Í lífsins ólgusjó svífandi þaut ég um loft á vængjum tveim
en þegar kvölda fer og lífsins klukka mun hægja á sér
þá dvelja mun þar að eylífu
Ó hvar ertu nú þú löngu liðna tíð
þá er heraflar góðs og ills háðu heilagt stríð
ástinn var þá ung og saklaus hugurinn
og þetta var heimur minn og enginn komst þar inn
|
||||
11. |
Línur tvær
04:15
|
|||
Langt er nú
síðan sáumst síðast ég og þú
og nú er
kominn tími til að haska sér
og með þér --------
fylgir vorið eftir hvert sem er
Nú situr hér
gamall maður sem að barmar sér
oh ho ho ohoh
oh ho ho ohoh
Leiðin löng
virtist stutt í morgun við fuglasöng
í fjarska var
ljómi lífsins létt við himinn bar
og með þér --------
fylgir vorið eftir hvert sem er
nú línur tvær
liggja saman svo langt sem tíminn nær
|
||||
12. |
Soldið
03:26
|
|||
Soldið sem ég ætla að gefa þér
Það veitir mér líf og slær í brjósti mér
Þú gafst mér ást þína og kærleika
Vildi'ég væri gæddur þeim mikla verðleika.
Soldið sem ég á
Soldið sem ég á
ætlað þér
Þú ert mér allt sem nokkur maður getur vonast til að öðlast
löngu og ströngu lífi sínu í.
Og ég mun reyna af fremsta megni til að vera þér sá maður
svo ekki ógni nokkurt vindaský
Þú ert dís minna vona
og drauma minna kona
Æ viltu ætíð vera stúlkan mín?
|
||||
13. |
Lífsins ljós
05:24
|
|||
Sit ég hér aleinn heima
og læt mig aðeins dreyma um þig - um þig
Í huga míns innstu skotum
þú vefur þínum ástarlotum um mig - um mig
En loks er ég vakna aftur
er eins og einhver ógnarkraftur ljósti mig - ljósti mig
Þá finn ég mínar ástasorgir
og hrynja allar skýjaborgir
allt verður grátt og kalt
tómleikinn út um allt - og lífsins ljós virðist slokna aftur
Þótt langur tími sé liðinn
lengri verður samt biðin eftir þér - eftir þér
Því þú ert bæði dáinn og grafinn
og burt úr mínum heimi farinn frá mér - frá mér
Loks er ég vakna aftur
er eins og einhver ógnarkraftur ljósti mig - ljósti mig
Þá finn ég mínar ástasorgir
og hrynja allar skýjaborgir
Og allt verður grátt og kallt
og tómleikinn út um allt - og lífsins ljós virðist slokna aftur
Lífsins ljós, lífsins ljós virðist slokna aftur, aftur
|
GustiRagg Iceland
GustiRagg (Ágúst Ragnarsson) is an Icelandic musician who has played with many of Iceland's popular groups. He has released three albums, two with his brothers and one solo album as well as few singles on various albums.
Streaming and Download help
If you like GustiRagg, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp